þriðjudagur, ágúst 04, 2009

SMÁ FRÉTTIR AF MÉR

Það er allt gott að frétta heðan úr Gunnukoti þó það koma hægðir og lægðir stundum.
Í gær þá fórum við Snorri minn í heimsókn til völlu vinkonu okkar og það var mjög gaman
að fara til völlu og við áttum ánæjulegan dag í gær.
Í morgun þá fór ég að vinna eftir sumarfríi og vann ég til tólf og þegar ég kom heim þá fekk
ég kviðakastog kastaði upp en en fekk mér samt jógúrt að borða og fór síðan upp í rúm og
lagði mig og vaknaði síðan hress við það að snorri kom inn en hann skrapp aðeins í vinnuna
sína.núna er búið ákveða það að ég hætti að vinna í 10-11 þann 1 sept og það var haldin fundur
í morgun með fulltrúa mínun frá atvinnu með stuðnigi og yfirmanni manni mínum og þá var þetta ákveðið og er ég mjög ágnæð með þá ákvörðun þó ég mun sakna starffólksins en þetta eru bara vinnu aðstæður sem ég get ekki unnið viðen ég stefni að því að fara snemma að sofa svo ég læt hér staðar numið .knús og kram til ykkar allra
ykkar Gunna

mánudagur, júní 22, 2009

EKKI BEINT Í BLOGGSTUÐI-SKRIFAÐ Í WORD

En mun þá seigja ykkur frá því nyjasta í mínu lifi .
Á föstudaginn fór ég á landsann að hitta læknirinn minn og við áttum gott spjall saman
og hún hækkaði lyfjaskammtinn minn og ég á að hitta næringasérfræðing bráðum .
Þegar ég var búin hjá lækninum þá fór ég í apótekið að ná í lyfin mín og lappaði ég
siðan heim og þegar ég kom heim þá ég raðaði í pillubóxið mitt og eftir það fór ég í tölvuna
og Snorri minn fór fyrir mig í bónus og kom hann til min um hálfsjö með vörunar og
kvöldinu eyddum við í tölvunni og og í dvd gláp .
Í dag fór Snorri minn í sund og ég var bara heima aö slappa af og hafði það gott
Og kv0ldinu var varið i við sjónvarpsgláp og við tölvu.
Ég ætlaði að pósta þessu blooggi mínu inn í gær en ég var svo þreytt í gærkveldi
að pósta þessu bara núna inn og vona að þið fyrirgefið það
í dag var mánudagurinn sannalega til mæðu því eftir að ég var búin að taka inn
morgunlyfin mín þá borðaði ég súrmjólk sem ég held að hafi verið skemmd og
mér var illt í maganum og ég kastði upp súrmjólkinni og síða varð allt í lagi með
mig og snorri minn kom til mín um fimm leitið og við munum eiga kósi kvöld saman.
En ég læt þetta nægja bili




kær kveðja ykkar Gunna

föstudagur, júní 12, 2009

EKKI GÓÐIR DAGAR-SKRIFAÐ Í WORD 11-12

Þegar ég vaknaði í morgun þá fattaði ég það að Rósa frænka var komin í heimskókn og
ég var lika með flokurt en samt fór ég fram og fekk mér að borða eftir að hafa tekið inn
pillunar mínar en eftir smá stund þá kastaði ég upp og ældi upp morgunmatnum og froðupillunni
minni og og eftir það þá tók ég inn veirkjastill og gat sofnað þá smá og síðan hringdi hjúkrunarfræðinurinn minn í mig því ég var senda póst og biðja hana að hringja í mig
og við áttum gott samtal saman og snorri minn kom til mín og við láum dormandi í rúminu
og síðan var ég mikið í tölvunni .síðan fór ég að sofa .
******
Dagurin í dag var eilitið skárri .ég gat tekið inn allar mínar pillur og það gekk vel
En ég var mikið í tölvunni á milli þess sem ég svaf og siðan kom Snorri til mín
og við munum eyða kvöldinu saman uppi rúmi með sitt hvorra tölvuna í fanginu.
En ég grét mikið í dag og mér leið mjög illa andlega svo þetta var ekki góður dagur heldur.
En ég læt þetta duga í billi .við bloggumst siðar


kær kveðja Guuna

miðvikudagur, júní 10, 2009

ÞAÐ SEM Á DAGA MÍNA HEFUR DRIFIÐ .

Á sunnudaginn þá fórum við til barnaafmæli til Svanhildar vinkonu því Dísa mín varð 11 ára
og það var mjög gaman að hitta þau öll knúsa krakkana .takk innilega fyrir okkur svana mín :).
Mánudagrinn var dálitið erfiður því ég varð döpur og grét svolitið og var dálitið langt niðri.
En dagurinn í dag var miklu betri og ég vaknaði í morgun og tók lyfin mín og borðai og fór síðan
Í tölvuna og síðan sofnaði ég við tölvuna og svaf dágóðan tíma en lyfin hafa þau áhrif að maður verður þreyttur en ég finn samt að þau hafa góð áhrif á mig en samt tekur tíma fyrir þau virka
og það er bara ein og hálf vika síðan ég byrjaði lyfin og þetta tekur allt sinn tima en ég er bara
svo mikil hrútur í mér og vill að þetta lagist strax en ég veit að þannig gengur það ekki fyrir sig :).Ég fer í tíman minn á morgun og fer upp á geðdeild lukkan tvö en ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en læt fylgja með eina mynd af henni Disu mini



knús og kram ykkar Hrútur Gunna

sunnudagur, júní 07, 2009

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ

Elsku Hjördis Águsta okkar

Innilega til hamingju með afmælið elsku stelpan okkar


þess óska þín Gunna og Snorri

föstudagur, júní 05, 2009

EFTIR NÓTTKEMUR NÝR DAGUR

Mér datt í þessi speki eftir viðtalið við sem á átti hjá yndislegri konunni á landspitalanum í gær
en sem sagt þá fór ég í viðtalið í gær og það gekk vel og ég var mjög ágnæð með viðtalið.
Eftir tíman þá fór ég heim og rétt eftir að ég var komin heim þá kom minn heitelskaði eftir
mér og við sloppuðum bara af og fórum í tölvunar og flokkuðum á netínu
******
Í þá vaknaði ég og fekk mér að borða og tok inn lyfin mín og fór síðan í tölvuna og flakkaði á
Netinu og fór bloggrúntinin minn og siðan setti ég í eina þvottavel og eftir það þá gerði ég
Smá verkefni í tölvunni og flakkaði smá á netinu og síðan skrifaði ég þetta blogg mitt í word.
Snorri minn fór að versla í matinn og fleira fyririr mig og síðan er bara komin helgi :).
Á sunnudaginn forum við í afmæli til hennar Dísu minnar og ég hlakka svo til að faðma
gullmolanna mína og lika að sjá þau öll .en ég ætla að láta staðar numið .

kær kveðja ykkar Gunna

föstudagur, maí 29, 2009

GÓÐIR DAGAR OG SLÆMIR DAGAR

Þetta var góður dagur í dag og ég tók stórt stökk átt að því að fá bata.
Ég fór upp á geðdeild og Björk mín kom með mér þessi elska og við hittum alveg.
Yndislega Konu og það var svo gott að tala viðhana og síðan hittum við lækni og ég talaði
Lika við hana og hjá henni fekk ég 2 lýf og á ég að taka þau inn og á fimmtudaginn þá fer ég
aftur til ráðgjafa mins og við tölum saman þá og á miðvikudaginn þá ætlar hún að hringja í mig
og ætlar hún að að heyra í mér hljóðið þá og hvernig mér liður þá .
síðan keyrði Björk mín mig í glæsibæ og ég sótti lýfin í apótekið og eftir það þá lappaði ég heim eftir Það hafa farið í 10-11 að kaupa mér að drekka og þegar heim var komið þá fór ég í tölvuna og sendi tölvupóst og að flakka á netinu og síðan kom Snorri heim og við munum eiga góða helgi saman En ég vona að þið öll eigið góða helgi og takk elsku Björk mín fyrir alla hjálpaina í dag .
Stórt ((((((KNÚS))))) til ykkar allra .
Knús og kram til ykkar allra .love ya all ykkar Gunna